Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

þriðjudagur, desember 02, 2003


Heimska fólk!

Alveg er það magnað hvað fólkið í Sörvævor er vitlaust. Fyrst kaus það í burtu eina manninn sem veiddi fisk og nú kaus það ekki í burtu eina manninn sem er einhver ógn. Í staðinn var sæta stelpan kosin í burtu. Heyr á endemi! Men hvað þetta virðist ætla að verða leiðinleg sería. Burton á eftir að vinna allar immunity challenge og hann á eftir að draga ógeðslega kvikindið han Jon með sér. Af hverju? Jú, það er eini gaurinn sem hann gæti hugsanlega ráðið við í final 2.

Eníveis, þýðir ekki að vera lengi á bömmer út af heimskum könum. Undanfarið hef ég hlustað töluvert á jólatónlist, ef ég fæ að ráða útvarpinu í bílnum þá er jóla-Létt stöðin sem verður fyrir valinu. Oftast eru spiluð jólalög sem koma mér bara í jólafíling en stundum kemur fyrir að spiluð eru lög sem jaðra við að vera lögbrot. Þá er ég að vísa til textans. Eru engin lagaákvæði til sem segja að hægt sé að hneppa skelfilega textahöfunda í varðhald? Nokkur dæmi um hrikalega texta:

Hjá konunum og körlunum
nú klingir öllum björlunum
la la la [man ekki textann] fjörlunum...

la la la [man ekki textann] á jólunum
og börn fá frí í skólunum...


Þetta er eitthvað lag með Siggu Beinteins. Jesús góður, hver ætli hafi samið þennan texta??? Ok, köllunum, bjöllunum og fjöllunum rímar (ekkert voðalega dýrt kveðið þó, en engu að síður rím). En málið er að Sigga syngur körlunum með r-i. Mun smekklegra að segja karl heldur en kall, annars væri í raun alveg eðlilegt að syngja hjá kellingunum og köllunum en það passar ekki við rythmann.

Þú veist hvenær hann kemur
Þig hlakkar alltaf til


Ó mæ god!!! Hvað er málið eiginlega??? Eru allir í tónlistarbransanum svona illa gefnir að enginn sér villuna í þessu??? Ég fæ alveg grænar...

Dingalingaling hó hó hó hó
Það gerist margt um jólin og okkur hlakkar til
Jibbíjei og koma nú jólin


Það liggur nú við að maður óski þess að þau komi nú bara alls ekki þegar þetta lag er spilað. Sama málvillan og í dæminu á undan og af hverju er ekki bara eitthvað hljóðfæri notað til að ná fram effektinum af "dingalingaling hó hó hó hó"??? Ég get svo svarið það, það þyrfti nú helst málfarsráðunaut á allt efni sem á að gefa út. Bækur eru prófarkarlesnar, af hverju er ekki hægt að fara yfir dægurlagatexta líka?

Jæja, kannski maður hætti að velta sér upp úr þessu og fari að vinna. Já og meðan ég man. Anna: Viltu drífa í því að blogga meira! Ég leggst alltaf í þunglyndi þegar ég les "Jæja, það er kominn föstudagur aftur" og fatta svo að það er bara þriðjudagur.

Sunna 09:08


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli