|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
mánudagur, desember 01, 2003 |
|
|
|
Helgin
Jæja, þá er helgin liðin. #$%&!$%#! Mikið skelfilega eru þessar helgar stuttar. Maður er rétt kominn í helgarmúdið á sunnudagskvöldi og þá er bara allt búið.
Eníveis, þótt stutt hafi verið, þá var helgin nú bara alveg ágæt. Á föstudaginn rumpaði ég einni ritgerð af og um leið og ég var búin að senda hana brunaði ég upp á Vesturgötu þar sem Óli og Anton voru í Ædol-partýi. Ekki held ég að það hafi verið vegna gríðarlegs áhuga á þættinum sem slíkum, meira svona að njóta þess að horfa á Stöð 2, en Anton er einmitt orðinn stoltur Stöðvar 2 áskrifandi. Síðar um kvöldið bættist Hjördís í hópinn. Ég var alveg drepleiðinleg þetta kvöld og biðst velvirðingar á því. Megnið af skapvonskunni í mér átti þó rót í flensufjanda sem ég hef glímt við í um viku þannig að þetta var ekki bara fýla í mér.
Allt of snemma á laugardagsmorgni fórum við Óli svo í vinnuna. Slæðingur að gera og hitt og þetta sem fór extra mikið í taugarnar á mér. Lífstykkjabúðin og Lúlli eru þar efst á lista. Ég var miklu slappari en fyrri daginn en lét það þó ekki stoppa mig í að fara í Blómaval eftir vinnu. Þar keypti ég fullt af dóti til að föndra aðventukrans. Útkoman var alveg skrambi góð. Ég þurfti reyndar að fá mér lúr í miðjum klíðum. Heilsan leyfði ekki samfleytt föndur í nokkra klukkutíma. Mig rámar í að pabbi hafi hringt í mig þar sem ég kúrði í rúminu en ég held líka að ég hafi látið Óla tala við hann. Málið snerist um pössun um kvöldið en við Óli höfðum samþykkt að leyfa bróður mínum að gista.
Pizza og vídjó var planið fyrir laugardagskvöldið. Eftir miklar þrautir á Dominos komust við loks heim með fóðrið. Síðar kom Anton í heimsókn. Við vorum fljót að grípa tækifærið og settum hann beint í tæknilagfæringar. Útkoman var æði, nú er hægt að tengja tölvuna við sjónvarpið og horfa á þær myndir sem við eigum þar og á diskum. Það er kúl!
Síðar um kvöldið bættust Þórir og Hjördís í hópinn. Eftir fyrri myndina varð ég að kveðja mannskapinn og fara í rúmið með stíflað nef og hausverk. Litli bróðir minn entist mun lengur, en hann er ekki alveg marktækur samt þar sem hann dottaði yfir fyrri myndinni.
Í gær hafði ég víst lofað að fara í jólaföndur í skólanum með Kára. Díllinn var að pabbi myndi í staðinn setja upp flísar í eldhúsinu hjá mér. Við Kári saumuðum eitthvað úr filti (mamma kann ENGAN VEGINN að velja föndur) í miklum þrengslum í Grandaskóla. Til að kæta Kára leyfði ég honum að kaupa kerti og vax til að skreyta kertið með. Það þótti okkur mun áhugaverðara föndur. En Kári greyið kom svekktur til baka, ekkert kerti til, bara hægt að kaupa vax. Ég sagði honum þá bara að kaupa vax og svo myndum við kaupa okkur kerti úti í búð. Ég er besta systir í heimi. Kári fékk svo að skíta allt út í stofunni minni og maka vaxi út um allt yfir Man. Utd. - Chelsea.
Um kvöldið kom Margrét, sem er með mér í spænskunni, í heimsókn og við rumpuðum einum 20 mínútna fyrirlestri af á rúmum klukkutíma. Helgin var svo enduð með því að skella Notting Hill í tölvuna og njóta tæknilagfæringa Antons. Nú er ég svo komin í vinnuna og ekki enn farin að gera neitt af viti. Langar bara heim!
Sunna 09:33
|
|
|
|
|
|
|