|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
föstudagur, desember 12, 2003 |
|
|
|
Jól smól
Úff púff. Nú er ég alveg að gefast upp. Á sörfi mínu á netinu að undanförnu hef ég tekið eftir því að farið er að bera á jólagjafalistum hjá allmörgum. Þessir listar eru oftar en ekki yfirfullir af alls konar dóti, bókum, geisladiskum, dvd-myndum, húsgögnum, snyrtivörum, fötum og ég veit ekki hvað og hvað. Já, fólk veit sko hvað það vill.
Ég hef aldrei gert jólagjafalista. Það mesta sem mér hefur tekist að gera er að merkja við þær bækur sem mér þykja áhugaverðar í bókatíðindum. En sú tíð er lööööööööngu liðin. Ég hætti að lesa í framhaldsskóla. Alveg. Önnur ástæða fyrir því að ég hef aldrei gert svona jólagjafalista er að mér finnst ég alltaf verða frek við það. Sennilega er þetta bara vitleysa í mér en það er samt eitthvað við jólagjafalista sem mér finnst sýna frekju viðkomandi. Mamma og pabbi spyrja mig um hver jól hvað ég vilji fá í jólagjöf og yfirleitt er svarið einfalt: Æ, bara einhverja flík. Í fyrra bað ég reyndar um örbylgjuofn í nýju íbúðina. En nú er ég alveg tóm.
Ég þræddi Kringluna í hádeginu, búð úr búð, en fann bara eftirfarandi hluti:
- trúðabúninga, doppótt tjullpils í ÖLLUM LITUM REGNBOGANS (tískan er alveg SKELFILEG)
- Alladín skó (hvað er málið eiginlega með þessa támjóu skó???)
- brauðvél og önnur álíka gagnleg heimilistæki.
Ég hugsa að ég endi með að biðja um heimsfrið og lausnir við öllum félagslegum vandamálum í ár. Það er svo sem ekki slæm ósk. Hver vill ekki fá heimsfrið? Ok, kannski Bush og Blair... Ég er samt ósköp hrædd um að ég fái ekki ósk mína uppfyllta.
Sunna 14:13
|
|
|
|
|
|
|