|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
fimmtudagur, desember 18, 2003 |
|
|
|
Lord of the rings
Jæja. Þá er maður búinn að sjá þessa mynd sem heimurinn er að tapa sér yfir. Ég þakka fyrir að Óli fékk boðsmiða á hana því ekki hafði ég nú mikinn áhuga á að borga mig inn á hana. Ég er ekki mikil Tolkien manneskja.
Tolkien og ég áttum fyrst samleið í 3. bekk í MR. Þá var The Hobbit skyldulesning í ensku, mér til mikillar armæðu. Af hverju var ekki hægt að hafa Hroka og hleypidóma eða eitthvað þannig sem skyldulesningu? Jane Austen var sko miklu meiri snillingur en Tolkien. Eníveis. Ég byrjaði á blessaðri bókinni. Hún var ekkert spes. Svo las ég meira og þá varð hún minna spes. Þegar ég var komin á 10. kafla var ég orðin svo sturluð af leiðindum að ég grýtti bókinni út í vegg og neitaði að lesa meira. Sem betur fer var ég með góðan kennara sem glósaði fyrir okkur útdrætti úr öllum köflunum þannig að ég komst nokkuð langt á því að klára aldrei þessa ógeðsbók. Eftir þessi fyrstu kynni mín af Tolkien ákvað ég að það væri kannski bara vissara að halda sig við Jane Austen til að halda heilsunni. Þess vegna hef ég aldrei lesið neitt meira eftir kallinn.
En fyrir tveimur árum kom út fyrsta myndin í seríunni Lord of the rings. Þar sem ég var nýbúin að uppgötva undraheim Harrys Potters ákvað ég að kannski væri ekki vitlaust að fara á Hringadróttinssögu, ég væri kannski komin á aldur til að fíla hana. Auk þess hafði myndin verið lofuð í hástert þannig að hún bara hlaut að vera góð. Einhverjir höfðu meira að segja orðað hana við Óskarsverðlaunin.
Ég er ansi glúrin við að giska rétt á Óskarsverðlaunamyndir þegar ég sé þær. Ég sá American Beauty löngu fyrir frumsýningu og vissi strax að hún myndi gera góða hluti. Ég mótmælti harðlega þegar fólk hélt því fram að Saving Private Ryan myndi vinna Óskarinn, þrátt fyrir að Shakespear in Love kæmi ekki í bíó fyrr en mörgum mánuðum seinna. Ég hef aldrei SOFNAÐ í bíó á Óskarsverðlaunamynd, þar með var augljóst að Saving Private Ryan myndi ekki vinna.
Nema hvað. Ég fór sum sé á Hringadróttinssögu fyrir tveimur árum. Meeeeeen hvað hún var leiðinleg! Það var ekki nokkur séns að þessi mynd ætti möguleika á verðlaunum sem besta myndin. Ég get svarið það, síðasta klukkutímann sat ég og geispaði og beið eftir að hún yrði búin. Myndin var 3 tímar og fjallaði um tvennt: Að koma einhverjum asnalegum hring í eldfjall og að berjast. Myndin var öll svört og grá með ljótum ógeðslegum skrýmslum. Já, hún var einfaldlega löng og langdregin. Ef maður ætlar að gera mynd sem er 3 tímar þá er kannski sniðugt að láta persónurnar gera eitthvað örlítið annað en að ganga og berjast.
Þetta var ástæðan fyrir því að ég hafði engan áhuga á að sjá mynd númer 2, þótt ég hefði heyrt að hún væri betri. Þegar Óli sagði að hann hefði fengið boðsmiða á sérstaka forsýningu á þriðju myndina ákvað ég að láta slag standa, hélt kannski að fyrsta myndin hefði verið svona svakalega leiðinleg að hinar tvær væru allt í lagi. Eða ekki. Plottið var nákvæmlega það sama og í fyrstu myndinni: ganga og berjast. Bardagasenurnar voru svona 85% af myndinni og þjónuðu mjög takmörkuðum tilgangi; að sýna hvað þeir væru með svakalega góða tölvuteiknara, búningahönnuði, smink crew og myndatökumenn. Þessar senur eru gerðar til þess að fá einhver Óskarsverðlaun. Annars gerast þær í rauntíma og eru alveg drepleiðinlegar. Ég held að framleiðendurnir hafi gert ráð fyrir að áhorfendurnir væru algjörlega heilalausir. Í alvöru, eftir 15 mínútur af bardaga þá má segja með fullri vissu að I GET THE POINT! MOVE ON!!!
Sem betur fer er 1 lítill feitur dvergur sem bjargar myndinni frá dauðadómi. Hann er sá eini sem fær mann til að brosa. Viggo Mortensen fær mann kannski til að brosa örlítið, en það er nú aðallega bara út af fantasíum og draumum, ekki myndinni eða hlutverkinu sem hann leikur.
Niðurstaða mín er að J.J.R. Tolkien hafi verið algjörlega geðveikur og uppdópaður alla sína ævi. Maður þarf nú að vera búinn að taka ansi mikið af ofskynjunarlyfjum og öðru rugli til að hafa jafn kolklikkað hugmyndaflug og hann. Það er nú bara ekki eðlilegt að búa til kynjaverur og kvikindi sem líta út eins og vel tuggðar tyggikúlur og ljót graftarkýli. Og svo nennti hann líka að búa til heilt tungumál! Nei, má ég þá frekar biðja um breskan húmor, rómantískar gamanmyndir og chick-flick myndir frá Hollywood.
Sunna 11:44
|
|
|
|
|
|
|