|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
fimmtudagur, desember 04, 2003 |
|
|
|
LSD í spilarann!
Það er nú soldið fyndið að tala við eldra fólk um tæknimál. Áðan hringdi roskin kona í vinnuna til mín. Hún var að spyrjast fyrir um nýjustu framleiðslu RÚV, Óma lands og þjóðar og vildi vita hvort þeir væru til á VHS. Ég fletti þessu upp og fann að þetta hefði bara verið gefið út á geisladisk og DVD (eða mynddisk eins og ég orðaði það við hana). Hún varð voða svekkt yfir þessu og sagði: "Þetta er ekki nógu gott, það er ekki allt eldra fólk sem getur spilað svona LSD..." Ég átti nú alveg bágt með mig.
Já, það er soldið fyndið að fylgjast með hvernig gamalt fólk höndlar tækninýjungar. Það þarf reyndar ekkert að fara neitt voðalega langt aftur til að finna fólk sem getur engan veginn höndlað tæknina. Móðir mín er ágætis dæmi um það. Hún og tölvan eiga í mjög dramatísku sambandi. Oftar en ekki hafa blossað upp heiftarleg rifrildi sem hafa endað á þann hátt að þær talast ekki við. Þá er kallað í mig og ég beðin um að tala tölvuna til og láta hana hætta að hegða sér eins og fíbbl.
Litli bróðir minn er hins vegar dæmi um hvernig fólk verður þegar það þekkir ekkert annað en fullt af rafmagnstækjum og fjarstýringum. Hann myndi sennilega fá flog ef hann sæi hvernig fólk poppaði áður en örbylgjuofnarnir komu til sögunnar. Hann þekkir ekkert annað en sirka 6 fjarstýringar á heimilinu og nokkrar kynslóðir af tölvum. Hann fiktar þangað til hlutirnir virka og honum þykir ekkert sjálfsagðara en að hafa sjónvarp og pleisteisjon 2 inni í herberginu sínu. Hann á gríðarlegt magn af vídjóspólum og er að koma sér upp ágætis safni af DVD líka. Svo ekki sé nú minnst á alla pleisteisjon leikina, bæði fyrir 1 og 2 (gamla pleisteisjontölvan er sko komin upp á háaloft eða eitthvert...). Hins vegar er fyndið að hugsa til þess að hann er svo glórulaus í hina áttina (vona ég alla vega) að ef einhver myndi bjóða honum LSD þá myndi hann sennilega halda að það væri tölvuleikur eða næsta kynslóð af DVD. Þannig að þetta er komið í hring. Fyndið...
Sunna 14:59
|
|
|
|
|
|
|