|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
fimmtudagur, desember 04, 2003 |
|
|
|
Matarboð
Gærdagurinn verður skráður á spjöld Sunnu-sögunnar held ég bara. Í fyrsta skipti borðuðu fleiri en 2 á Hofsvallagötunni án þess að pizza frá Dominos væri á boðstólnum. Foreldrum Óla var boðið í mat og borðstofuborðið var tekið fram og dekkað glæsilega. Á matseðlinum var mexíkanskt (já, ég segi ekki mexíkóst, það er asnalegt) eðalgúrme, kjúlli steiktur upp úr fajitas kryddi, tortillas, grænmeti, rífræd bíns, ostur, sýrður rjómi, guacamole, salsa og hrísgrjón. Mmmm... æðislegur matur. En ég læri víst aldrei af reynslunni. Alltaf hleð ég of miklu á pönnukökurnar þannig að það er ekki nokkur leið að loka þeim. Þeir ættu eiginlega að selja 10X stærri kökur.
Eníveis, eftir matinn tókum við fram heimabakaðar "pepperkakor" úr Krónunni og testuðum kaffivélina í fyrsta skipti. Það var sko kúl. Það kom ljós á hana og allt og svo heyrðist eitthvað hljóð (örugglega kaffihljóð) og það kom svona spes kaffilykt í íbúðina. Það hefur aldrei gerst áður. Kaffið hlýtur að hafa verið alveg allt í lagi því allir fengu sér ábót. Ég tilheyri reyndar ekki öllum þar sem ég get ekki með nokkru móti komið niður ógeðsdrykknum kaffi. Bwðöööhh...
Ég keyrði Bústaðaveginn um daginn til þess að sjá ljósabrjálæðinginn en varð fyrir miklum vonbrigðum. Allt var myrkvað í garðinum hans. Við héldum að hann hefði kannski þurft að flytja til að geta greitt rafmagnsreikninga síðustu ára. En þegar ég var að fara í vinnuna í morgun sýndist mér glitta í svakalegar ljósaseríur aðeins lengra á Bústaðaveginum. Hjúkkitt segi ég nú bara. Það er alveg möst að keyra nokkrum sinnum fram hjá þessu upplýsta húsi fyrir jólin.
Sunna 10:13
|
|
|
|
|
|
|