Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

mánudagur, desember 08, 2003


Pólitískt blogg

Ég er ekki mikið fyrir pólitískt blogg. Það er aðallega af því að mér finnast stjórnmál alveg drepleiðinleg en einnig að hluta til vegna þess að ég hef sáralítið vit á þeim. Kannski soldið fyndið að stefna á að útskrifast sem stjórnmálafræðingur í vor, hafa lokið 64 einingum í náminu og segjast hvorki hafa áhuga á því né vit. Námið er svo sem allt í lagi en mér finnast samt real life stjórnmál leiðinleg.

En hvað um það. Ég var að horfa á Ísland í bítið áðan og varð virkilega pirruð út í stjórnmálin. Þar var viðtal við konugrey sem á barn með eitthvert heilkenni. Hún hefur engin úrræði önnur en að annast barnið sjálf og getur því nánast ekkert unnið. Hún er nýbúin að fá umönnunarbætur, 20.000 á mánuði, og hún fær einfalt meðlag. Frá áramótum til júní var hún með 70.000 krónur í heildartekjur.

Þetta dæmi rifjaði upp fyrir mér annað dæmi. Fyrir þó nokkru síðan var viðtal við foreldra 15 ára stráks í Kastljósinu. Hann á við þunglyndi og geðræn vandamál að stríða og er svo þungt haldinn að hann er rúmliggjandi. Mamman vinnur ekkert og pabbinn vinnur 50% vinnu. Strákurinn fær enga aðstoð og það eru aðeins 9 rúm á unglingageðdeild. Ómögulegt að leggja hann inn.

Hvað er málið? Er ekki dýrara að reka kerfið svona? Af hverju er ekki hægt að koma á fót stofnunum sem annast þá sem ekki geta annast sig sjálfir og gera foreldrunum þannig kleift að vinna sína vinnu? Í flestum tilvikum er um að ræða fólk sem myndi fúslega vinna sína vinnu og greiða alla sína skatta á réttum tíma. En í stað þess að fá inn skatttekjurnar, bæði frá foreldrunum og þeim sem gætu unnið þessi sérhæfðu störf að annast þá sem minna mega sín, þá er öllum gert erfitt fyrir. Dæmið er svona:

Foreldri í engri vinnu + barn sem foreldrið annast = engar skatttekjur + barn í ömurlegum aðstæðum

en ætti í raun að vera svona að mínu mati:

Foreldri í vinnu + starfsmaður á stofnun sem annast barn = skatttekjur frá tveimur einstaklingum + barn í betri aðstæðum

Það sýður alveg á mér. Það óskar þess enginn að eignast barn með einhvers konar fötlun, hvort sem hún er líkamleg eða andleg, og börnin velja hana svo sannarlega ekki sjálf. Mér finnst ekki rétt að stimpla duglega fólkið sem aumingja.

Enn annað dæmi er dæmi um einstæða foreldra. Margir einstæðir foreldrar eru ekkert einstæðir og hafa það alveg fínt. Hins vegar er miklu hagkvæmara að segjast vera einn á báti. Sumir einstæðir foreldrar eru nefnilega með meiri heildartekjur en hjón. Hjónin þurfa alveg jafnmikið, ef ekki meira að koma barni á leikskóla en þurfa að vera á biðlista af því að ríku einstæðu foreldrarnir fara fram fyrir röðina. Alvöru einstæðir foreldrar, sem hefðu ekkert á móti því að vera ekki einstæðir, berjast kannski í bökkum við að láta enda ná saman og horfa upp á aumingja komast inn í félagslegt húsnæði án þess að gera nokkurn skapaðan hlut. Það er bannað að vera duglegur.

Boðskapurinn er: ef þú getur unnið þér inn nógu mikið til að skrimta þá skulum við frekar pikka upp glæpa- og dóplýðinn af götunum, sem er alveg pottþétt að á aldrei eftir að gera nokkuð gott fyrir samfélagið, og troða þessum sora inn í félagskerfið. Aldrei að umbuna þeim sem eru duglegir.

Mér finnst að þeir sem eru aumingjar af fúsum og frjálsum vilja megi bara svelta. Til hvers að aðstoða þá sem vilja ekki gera neitt á móti? Men hvað ég er pirruð!

Sunna 09:37


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli