|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
þriðjudagur, desember 23, 2003 |
|
|
|
Íþróttamaður ársins 2003
Alveg er ég orðlaus yfir 10 efstu í kjörinu um íþróttamann ársins. Af hverju? Látum okkur sjá...
1. Ásthildur Helgadóttir, knattspyrnukona hjá Malmö í Svíþjóð.
Jú, hún á svo sem skilið að vera þarna á listanum.
2. Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnumaður hjá Chelsea í Englandi
Hann á kannski líka alveg skilið að vera á listanum en hann hefur ekki fengið mörg tækifæri til að sýna sig þannig að mér finnst að hann ætti ekki að vinna.
3. Hermann Hreiðarsson, knattspyrnumaður hjá Charlton í Englandi
Það verða alltaf að vera nokkrir boltakallar á listanum. Hermann betri kostur en margir aðrir.
4. Jón Arnar Magnússon, frjálsíþróttamaður úr Breiðabliki
Hvað hefur Jón Arnar gert í ár? Tognað í litlu tásu? Tími hans er liðinn, einfalt mál, og þá á hann ekki að taka sæti þeirra sem eiga meira skilið að vera á listanum.
5. Jón Arnór Stefánsson, körfuknattleiksmaður hjá Dallas Mavericks í Bandaríkjunum
Helvíti góður árangur hjá stráknum að komast í NBA. Væri samt enn betra ef hann fengi að spila eitthvað.
6. Karen Björk Björgvinsdóttir, danskona úr dansdeild ÍR
Ok, hér er komin heimsmeistari. Þessi hefur náð virkilega góðum árangri sem ekki allir geta státað af.
7. Ólafur Stefánsson, handknattleiksmaður hjá Ciudad Real á Spáni
Ólafur Stefánsson ber höfuð og herðar yfir aðra handboltamenn á landinu og þótt víðar væri leitað. Hann á skilið að sitja á lista fárra útvaldra.
8. Ragnhildur Sigurðardóttir, kylfingur úr Golfklúbbi Reykjavíkur
Þetta er nottla bara út í hött. Í fyrsta lagi er golf ekki íþrótt. Það að labba um grænar flatir í asnalegum fötum og ljótum skóm er fáránlegt. Fínn göngutúr sem fólk fær út úr þessu sennilega en fjöldinn allur fer í göngutúra án þess að titla sig íþróttamenn. Í öðru lagi eru bestu golfarar á landinu algjört prump á alþjóðlegum mælikvarða. Þeir sem geta ekki skarað það mikið fram úr komist upp úr meðalmennskunni hér heima á klaka eiga ekki að sitja á listanum yfir íþróttamann ársins.
9. Þórey Edda Elísdóttir, frjálsíþróttamaður úr FH
Þórey Edda hefur ekki sýnt neina afburðatakta í ár. Hún á kannski enn von en stangastökk konur úti í heimi eru alveg að stinga hana af.
10. Örn Arnarson, sundmaður úr Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar.
Sú var tíð að Örn gat helst ekki stungið sér til sunds án þess að setja met. Nú er hann bara svona meðalmaður í 25 metra laug og maður efast um að hann nái takmarkinu sem hann setti hér um árið; gull í Aþenu 2004.
En nú spyr ég af hverju Kristín Rós Hákonardóttir er ekki á listanum. Hún hefur algjöra yfirburði í heiminum. Við höfum ítrekað fengið það staðfest að hún er langbest í sinni sundgrein í sínum fötlunarflokki í öllum heiminum. Hvað getur hún gert meira? Getur hún verið meira best? Þarf hún að vera bestust? Eða fyrst hún dómínerar í heiminum, þarf hún þá að verða best úti í geimi líka? Ég held að það sé óhætt að fullyrða að hún er líka best á tunglinu og jafnvel bara í öllu sólkerfinu. Það hefur þráfaldlega verið litið framhjá henni í vali á íþróttamanni ársins síðustu ár þótt hún hafi líka verið best þá. Af hverju? Er það af því að hún er fötluð? Á hún þá ekki skilið að fá verðlaun fyrir frábæran árangur? Mér finnst þetta vera fordómar!
Sunna 15:23
|
|
|
|
|
|
|