Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

þriðjudagur, desember 23, 2003


Skítafýla

Já, skítafýlan leikur um stóra húsið í Efstaleitinu. Skata ku orsaka fnykinn sem þýðir að ég get ekki farið upp í mötuneyti að kaupa mér neitt að borða án þess að leggja líf mitt í hættu. Það er bömmer þar sem ég er orðin töluvert svöng og gæti alveg hugsað mér eina samloku með roastbeef. Smitaðist af langlokunni sem ég sá Evu borða áðan.

Annars gengur jólaundirbúningur upp og ofan hjá mér. Í gær brá ég mér í foreldrahúsin til að fá hjálp við að setja saman piparkökuhúsið mitt. Glöggir lesendur vita að útlitið var ekki gott, veggir og þak brotið og öll stykki skökk og skæld. Hins vegar er pabbi alveg algjör meistari í piparkökuföndri og nostraði við að líma þetta saman með bræddum sykri. Mér var hleypt í glassúrsprautuna (sem mamma er reyndar MUN flinkari með) þannig að útkoman varð ósköp lítið og sætt hús með klunnalegum skreytingum. En þetta var nú bara glæsilegt fyrir byrjanda. Það eru aðventuljós í gluggunum og jólaseríur bæði á grindverki, hliði og í gluggum. Svo eru grýlukerti í þakskegginu. Já, þetta hús er nú bara nokkuð kúl.

Jólagjafainnkaupin mjatlast áfram. Er ekki alveg búin enn en er full bjartsýni um að þetta klárist strax eftir vinnu. Vandinn er yfirleitt að láta sér detta eitthvað sniðugt í hug til að gefa en það getur reynst erfiðara en það hljómar. Fyrir manneskju sem veit með engu móti hvað hana langar í jólagjöf (fyrir utan sófa, baðinnréttingu og frí í vinnunni) þá er álíka erfitt að fá góðar hugmyndir fyrir aðra. Ef það tekst er það tilviljunum háð hvort tilteknar gjafir fáist eða hafi yfir höfuð verið fundnar upp. Ohh, hvað ég hlakka til þegar jólaundirbúningurinn verður búinn. Mig langar í svínasteikina mína, brúnu sósuna og brúnuðu kartöflurnar... en fyrst er það hangikjöt í kvöld.

Sunna 13:36


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli