Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

mánudagur, janúar 05, 2004


Ammælissagan - II hluti

Höldum nú áfram þar sem frá var horfið. Þegar við sögðum síðast skilið við söguhetjuna, Sunnu ammælisbarn, var hún að fara að undirbúa ammælisdinner, kjúkling og gúmmulaði.

Óli eldaði fáránlega góðan kjúlla og franskar með og ég gerði æðislega gott hrásalat í nýju matvinnsluvélinni. Þessi matvinnsluvél er sko algjört tryllitæki. Fyrir matinn tókum við upp freyðivínsflösku og skáluðum fyrir ammælisbarninu. Svo borðuðum við af bestu lyst enda svaka góður matur á borðum. Eftir matinn klæddum við okkur í útiföt og röltum út á róló. Þar var síðasti flugeldurinn sprengdur, lítið og pent gos með smá látum. Ég fékk líka stjörnuljós í tilefni dagsins og mér leið eins og algjörri prímadonnu. Þegar við vorum orðin blaut á tásunum og rjóð í kinnum tók við síðari hluti átveislunnar. Ég tók fram gulan búðing með niðursoðnum jarðarberjum. Þetta var svona gulur búðingur eins og amma mín bjó alltaf til, ýkt góður og ég sleikti skálina til að ekkert færi til spillis. Þá var nammi og snakk sett í skál og spilin Spectrangle og Scrabble tekin fram. Furðuleg orð á borð við stóðmökin og fríðbrúaðir urðu deiluefni en allt gekk þó vel að lokum.

Í gær vorum við vakin ALLT of snemma. Gamla kellingin á neðri hæðinni ákvað að banka upp á fyrir klukkan 10 á sunnudagsmorgni. Ég mætti til dyranna í slopp og vondu skapi og náði að hrella hana í burtu. Fékk ekki snefil af samviskubiti þar sem erindi hennar var að fá af mér peninga sem ég get ekki séð að hún eigi að fá.

En hvað um það, fyrst við vorum nú vöknuð á annað borð var ekki úr vegi að byrja bara að hamast í eldhúsinu. Rétt fyrir hádegið hóf ég bakstur og galdraði fram eina marengstertu með þeyttum rjóma og marssósu og Sunníska útgáfu af eplaköku sem amma bakaði alltaf. Enn á ný kom matvinnsluvélin að góðum notum og töfrasprota-tryllitækið stóð líka fyllilega undir væntingum. Óli tók til og bakaði vöfflur. Það gekk reyndar ekkert voða vel þannig á endanum var pabbi kominn í vöfflubaksturinn og þá fóru hlutirnir fyrst að ganga.

Þegar 15 manns voru komnir inn í stofu tókum við eftir því að íbúðin er kannski dálítið lítil. Kökurnar hittu beint í mark og boðið gekk alveg hreint stórvel. Jafnvel haugvel og hundvel. Við höfðum haft nokkrar áhyggjur af því að það væru ekki til nógu margir kaffibollar en þær áhyggjur hurfu eins og dögg fyrir sólu þegar mamma kom. Hún hafði greinilega haft sömu áhyggjur og gaf mér því bolla í ammælisgjöf.

Já, kökuboðið heppnaðist svona líka svakalega vel. Kökurnar kláruðust, fólk fékk sér ábót af kaffi og krakkarnir átu piparkökuhúsið mitt. Við vöskuðum upp sirka 30 sinnum þennan dag. Það skyldi því engan undra að ég var alveg búin að vera eftir daginn...

Sunna 13:22


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli