|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
þriðjudagur, janúar 13, 2004 |
|
|
|
Berdreymin?
Enn halda draumfarir mínar áfram. Í nótt dreymdi mig að Eva, vinkona, hefði eignast dóttur. Dóttirin var hin sprækasta og þótti það ansi merkilegt að hún var þyngri en ég. Reyndar var ég óvenjulétt þar sem bein mín voru úr fjöðrum eða einhverju voða léttu en barnið var með bein úr grjóti. En það þótti víst ekki koma að sök, hún var víst bara harðgerari fyrir vikið.
Það sem mér þótti samt merkilegast þegar ég vaknaði, var að búið var að gefa hnátunni nafn. Hún var skírð Steinunn Sigríður, í höfuðið á Steinunni og Sigríði sem vinna með okkur Evu á auglýsingadeildinni. Eva vildi endilega sýna Steinunni hvað henni þætti vænt um hana en hún kunni ekki við að skilja Sigríði út undan þannig að Sigríðar-nafnið fékk að fljóta með.
Þá vitum við það, Eva eignast dóttur innan skamms, hún mun heita Steinunn Sigríður Stefánsdóttir, skammstafað S.S.S. Ég ætla bara rétt að vona að barnið verði ekki smámælt.
Sunna 13:34
|
|
|
|
|
|
|