Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

laugardagur, janúar 03, 2004


Ég á ammæli í dag

Jæja, þá er ammælisdagurinn runninn upp. Nú væri gaman að bæta við bjartur og fagur en sú staðreynd að ég á ammæli 3. janúar tryggir nokkurn veginn að ammælisdagurinn minn er sjaldnast bjartur og fagur. Oftast er hann einmitt eins og í dag, grár, blautur og frekar subbulegur.

En hvað um það. Ég vaknaði í morgun og fékk pakka. Sá var ekki af verri endanum, fullt af nuddi og dekri í einhverri Spa-stöð úti á landi [lesist Kópavogur]. Ég þjáist af krónískri vöðvabólgu og hlakka því mikið til að sjá hvort svona nudd hjálpar mér ekki eitthvað. Ef það gerir það ekki, þá hlýtur þetta alla vega að vera gott á meðan á því stendur. Upp úr hádeginu kom Óli heim úr vinnunni með nýbökuð rúnstykki, snickersköku og alvöru kók. Þegar maður á ammæli má maður fá kók, ekkert pepsi max rusl. Mmmm... Eftir kökuát og kókdrykkju lagði ég leið mína út á land [lesist Kópavog]. Þar ætlaði ég að leita mér að ammælisgjöf. Maður á nebbla alltaf að gefa þeim sem manni þykir vænt um ammælisgjöf og það vill svo til að mér þykir mjög vænt um mig. Í fyrra gaf ég mér græjur en í þetta skiptið fann ég ekkert. Kannski finn ég eitthvað á næstunni. Nú stendur til að elda dýrindis kjúkling og búa til eitthvað gúmmulaði með í matvinnsluvélinni. Á morgun koma tvær fjölskyldur í kaffi og þá reynir sko heldur betur á bökunarhæfileikana. Mamma tilkynnti mér að hún ætlaði að gefa mér kökudisk og spaða í ammælisgjöf þannig að ég verð víst að hrista einhverja Hnallþóru fram úr erminni til að nota diskinn.

En víkur þá sögunni að gærkvöldinu. Tveir vélritunarkennarar, ég og Þórir Þröngsýnis-strumpur hittumst á Vesturgötu og horfðum á Idol og Svínasúpuna. Ég var nú ekki par sátt. Akkuru? Jú, látum okkur nú sjá...

Hlutdrægni dómara er farin að fara í taugarnar á mér. Tinna Marína hefur sjaldan fengið sanngjarna umfjöllun hjá dómurunum og það sama má segja um Önnu Katrínu. Það er alveg sama hvað Anna Katrín gerir, alltaf stendur Bubbi upp fyrir litla sviðsdýrinu. Hún gæti jafnvel prumpað á sviðinu og hann yrði sáttur. Það má þó ekki skilja mig svo að mér þyki hún ekki syngja vel, þvert á móti. Að mínu mati syngja allir keppendurnir mjög vel. Hins vegar finnst mér hún hafa átt færri góða daga en aðrir en samt fær hún endalaust lof. Jafnvel þótt hún mæti í trúðabúning upp á svið. Mér fannst Tinna Marína standa sig glæsilega í gær, ég fékk gæsahúð við að heyra hana syngja Against All Odds. En það er eins og þær séu ekki bornar saman á jafnræðisgrundvelli. Dæmi: Anna Katrín fer út af laginu (eins og gerðist í gær). Dómararnir segja: "Já, þú ert greinilega með smá skít í hálsinum... en það er allt í lagi... þú ert svo frábær...". Svipað dæmi um Tinnu (sem reyndar er ekki til því hún hefur aldrei farið út af laginu mér vitanlega). Dómararnir segja: "Nei, þetta var ekki gott!" Hvað er málið! Skilaboð til dómara: Þorvaldur, þú hefur vit á því sem þú ert að segja. Sigga, þú ert alltaf sammála næsta dómara á undan. Gerðu okkur þann greiða að vera þá bara sammála Þorvaldi. Bubbi, plís, opnaðu augun... já eða eyrun!

Næsta mál á dagskrá. Svínasúpan. Sjaldan eða aldrei hef ég séð jafnlélegan sjónvarpsþátt. Ég hló ekki að einum brandara. Maður átti von á góðu þar sem Skari Skrípó hefur staðið sig stórkostlega með síðustu tvö áramótaskaup en þetta var honum nú bara ekki samboðið að mínu mati. Við tókum reyndar eftir því að hann var ekki skráður fyrir handritinu sem skýrir ýmislegt. Þá veltir maður fyrir sér hvort dagskrárdeild Stöðvar 2 hafi gengið af göflunum við að hleypa þessu í loftið. Fólk þarf alla vega að vera orðið ansi skemmt í hausnum til að hlæja að þessu.

Jæja, þá er ég búin að hleypa pirring gærkvöldsins út. Nú er mál að snúa sér að nýju matvinnsluvélinni og búa til eitthvað sniðugt í henni. Mmmm... svo er ammælismatur rétt strax... jeij!

Sunna 18:05


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli