|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
föstudagur, janúar 02, 2004 |
|
|
|
Árið 2003 gert upp
Jæja, þá er enn eitt árið liðið og það þýðir að ég er árinu eldri. Undanfarið hafa áramótin minnt mig óþægilega mikið á það og ég held að það tengist því helst að ég á ammæli svona nánast á áramótunum sjálfum. Þegar ég var lítil fannst mér það bara kúl, þá var alltaf hægt að skjóta upp afgangs rakettu mér til heiðurs. En núna finn ég alltaf smá söknuð um leið og nýtt ártal kemur, svona eins og ég tími ekki alveg að sleppa gamla árinu. En hvað um það. Um áramót er algengt að fólk geri upp árið sem er liðið. Ég hef því ákveðið að taka saman það sem stóð upp úr hjá mér á árinu 2003, sem var mjög gott ár að mínu mati.
Persónulegar aðstæður breyttust verulega á árinu og þær breytingar voru mjög til góða. Eitt stykki Óli varð á vegi mínum og hafði það töluverðar breytingar á mínum högum. Í kjölfarið kynntist ég fullt af fólki og furðulegum áhugamálum. Vélritunardýrkun og krikket var mun oftar í huga mér en öll hin 22 árin sem ég hef lifað.
Íbúðin mín tók stakkaskiptum árið 2003. Í upphafi árs var eldhúsið rifið út. Nýja innréttingin fékk að bíða í stofunni í nokkra mánuði áður en við fundum loks tíma til að setja hana upp. Þá var eldhúsið einnig málað ásamt flestum hurðum í íbúðinni. Í lok árs var svo hafist handa við að setja hurðir og höldur á eldhússkápana og flísaleggja vegginn. Já, eldhúsið breyttist töluvert.
Ég hef aldrei unnið jafnmikið og árið 2003. Fyrripart árs vann ég aðeins á laugardögum og örlítið inni í textavarpi en um sumarið bættist við 100% vinna á fréttastofu útvarpsins. Um haustið byrjaði ég svo í nýju starfi í söludeild RÚV þar sem ég er enn. Lánasjóðurinn var ekki par sáttur við þetta og ákvað að skerða lán mín alveg ýkt mikið.
Ég fór tvisvar til útlanda þetta árið, en þó voru ferðalögin mjög svo í styttri kantinum. Júróvisjon í Riga stendur vissulega upp úr sem eitt af mestu ævintýrum sem ég hef upplifað. Það var gaman að fá loksins að upplifa stemninguna sem maður hefur bara fengið í gegnum sjónvarpið áður. Þetta verður eflaust endurtekið seinna, bara spurning hvenær. Hin ferðin var mun styttri. Það var dagsferð til Hamborgar í október þar sem stóð til að sjá landsliðið bursta silfurhafana frá HM 2002. Ekki tókst það nú alveg og ekki var ferðin heldur alveg dagsferð. 4 tíma seinkun í Keflavík varð til þess að ég missti næstum af leiknum. Ég var alveg ógeðslega þreytt þegar ég kom heim aftur.
Breytingar á námi mínu urðu mjög miklar á árinu. Ég kláraði alla skyldu í stjórnmálafræði og sótti um Nordplus-styrk til Danmerkur. Ekki fékkst hann fyrr en seint og um síðir þegar ég var löngu búin að gera önnur plön. Ég ákvað að segja skilið við stjórnmálafræðina í bili og læra smá spænsku í vali. Ég sé ekki eftir því og tel mig hafa náð að rifja upp merkilega mikla spænsku sem var grafin djúpt inni í iðrum heilans. Um jólin hafði ég lokið 79. einingunni minni sem þýðir að ég á aðeins 11 eftir fram að B.A. prófi. Kúl.
Mikið átak hófst á árinu. Það gekk upp og niður, aðallega niður samt. Ég byrjaði að æfa fótbolta aftur, mér til gamans. Það fór nú ekki betur en svo að ég rifbeinsbrotnaði eftir nokkrar æfingar og varð því að taka mér frí vegna meiðsla. Ræktin var líka heimsótt af og til, þó aðallega af.
Já, þetta eru helstu afrek mín á síðasta ári. Nú er nýtt byrjað og ég held að það hafi nú bara byrjað vel. Alla vega ef eitthvað er að marka málsháttinn um að fall sé fararheill. Fyrsta dag ársins varð ég nebbla fyrir því óláni að fá sjónvarpsfjarstýringu í hausinn þannig að ég er með kúlu og sár á enninnu. Nú kann fólk að spyrja hvort einhver hafi kastað fjarstýringu í hausinn á mér... neibbs, ég missti hana nú bara sjálf. Óli hló sig alveg máttlausan en ég engdist um af sársauka. Það er ekkert grín að fá Philips fjarstýringu í hausinn.
Sunna 15:27
|
|
|
|
|
|
|