|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
föstudagur, janúar 09, 2004 |
|
|
|
Tilraun til skemmtilegheita
Alltaf þegar ég opna internet explorer dúkkar síðan mín upp. Hún minnir mig alltaf óþægilega mikið á hvað hér hefur verið bloggað um óáhugaverða hluti undanfarið og það hefur dregið úr löngun minni til að blogga. En nú skal blaðinu snúið við.
Skólinn er byrjaður. Það er bæði gott og vont. Hið góða er að ég er aðeins í 4 tímum á viku og þetta er (vonandi) síðasta önnin mín í háskólanum (alla vega í bili). Hið slæma er tvennt. Ég er ekki enn búin að fá svar um hvort valgreinarnar mínar voru samþykktar á skorarfundinum fyrir jól. Ef ég fæ þetta ekki samþykkt í tæka tíð er ég hrædd um að ég sé ekki að fara að útskrifast. Hitt er að ég þarf víst að fara að skrifa einhverja fjandans BA-ritgerð. Men ó men hvað það leggst illa í mig. Ég er reyndar með ágætis hugmynd en hef ekki minnstu hugmynd um hjá hvaða kennara ég á að skrifa. Kannski maður taki bara sénsinn, skrifi hjá Hannesi, steli 30 blaðsíðum einhver staðar, skellli inn nokkrum tilvísunum hér og þar og skelli mér svo bara til útlanda. Hmmm, ætli ég fái ekki bara 1. einkunn fyrir það???
Nei, svona í alvöru talað, hvernig í andskotanum á maður að byrja á svona??? Ég hef byrjað á öllum mínum ritgerðum nóttina áður en ég hef átt að skila (eða svona hér um bil) en ég er ekki viss um að það gangi upp núna.
En hvað um það. Uppi eru miklar pælingar um sumarleyfi. Ég þarf svo mikið á því að halda að fá frí í 2 vikur og fá að liggja á strönd þar sem ég hef unnið eins og svín síðustu 2 sumur. Óli talaði um að hann væri kannski á leið til næsta lands við andskotann... jahh, kannski bara nokkuð góð lýsing. 10 tíma flug frá London færir okkur nebbla kannski bara alla leið til Kenya. Sjáum til hvað gerist, en ég er virkilega spennt fyrir þessum möguleika.
Jæja... mér sýnist að þetta blogg sé ekki mikið skemmtilegra en þau síðustu þannig að ég hugsa að slútta þessu núna og fara að leita mér að Idol-samastað.
Sunna 19:29
|
|
|
|
|
|
|